Við viljum ekki Roosh Vorek nauðgunarsinna á Íslandi.

The Issue

Nauðgunarsinni stefnir íslenskum fylgjendum sínum saman!

Þann 6 febrúar næstkomandi laugardag mun umdeildur bandarískur rithöfundur og „pickup artist“, Roosh Vorek að nafni, stefna íslenskum fylgjendum sínum saman. Vorek mætir oftar en ekki andstöðu hvert sem hann fer sökum þess hve umdeildar skoðanir hans eru. Hann er annálaður andfemínisti og lýsingar hans á kynlífsathöfnun hans minna margar hverjar heldur á lýsingar á nauðgunum.

Ástand rekkjunauta skiptir ekki máli:
Vorek kom hingað til lands árið 2011 og gaf í kjölfarið út bókina Bang Iceland. Í bókinni ráðleggur hann karlmönnum hvernig þeir eigi að haga sér til að ná að sænga hjá íslensku kvenfólki eftir nótt í miðbæ Reykjavíkur. Þar er meðal annars að finna eftirfarandi lýsingu;

„Á leið til herbergis mín áttaði ég mig á því hve ölvuð hún var. Í Bandaríkjunum hefði kynlífið okkar flokkast sem nauðgun þar sem hún var of drukkin til að veita samþykki sitt. Ég var allsgáður en ég get ekki sagt að ég hafi hugsað mig tvisvar um eða hikað.“

Roosh vill bæta samfélagið og gera það móttækilegra fyrir kenningum sínum og lífsviðhorfum. Honum þykir t.d. of mikið um nauðgunarkærur og hans lausn er að lögleiða allt sem fer fram í einkarými, þar á meðal kynferðislegt ofbeldi, því slík lög myndu kenna konum að passa sig betur.

Helstu gildi kvenna að hans mati felast í útliti þeirra og undaneldishæfni, þeirra hlutverk er fyrst og fremst að þjóna karlmönnum og fullnægja hvötum þeirra.

Í bókinni Bang Iceland segir hann affarasælast til kynlífs með íslenskum konum að ná þeim afsíðis og hella þær fullar. Þessi boðskapur féll í grýttan jarðveg hérlendis og var bókin kölluð leiðarvísir fyrir nauðgara.

This petition had 1,889 supporters

The Decision Makers

Götumenning íslands
Götumenning íslands

Petition Updates

Share this petition

Petition created on February 1, 2016