Afturköllum brottvísun Fatma og Nadifa

The Issue

Fatma Hassan Mohamoud og Nadifa Mohamed eru ungar konur frá Mogadishu höfuðborg Sómalíu. Þær eru umsækjendur um alþjóðlega vernd hér á landi. Áður var þeim veitt vernd í Grikklandi þar sem þær bjuggu á götunni.

Vegna þessa stendur til að vísa þeim úr landi svo þær geti snúið aftur í ómannúðlegar aðstæður og umhverfi sem er hættulegt konum í Grikklandi.

Þær Fatma og Nadifa eru með hræðilega áfallasögu og koma frá landi þar sem einna minnst kvenréttindi gilda. Það á að vera baráttumál okkar allra að leyfa þessum fjöldabrottvísunum dómsmálaráðherra ekki fram að ganga.

Þess ber að geta að eftirfarandi aðstæður þurfa konur og stúlkur að búa við í Sómalíu:

Samkvæmt Sharia lögum er refsiramminn fyrir karla 10 ár fyrir að drepa konu sína, dóttur, systur eða móður. Ef að sýnt þykir fram á að gerandinn hafi verið í miklu ójafnvægi þá kemur það til refsilækkunar. Algengt er að engin refsing liggi við verknaðinum.

Kona getur ekki sótt um skilnað frá eiginmanni sínum, karlmenn mega aftur á móti skilja við konur sínar eftir hentisemi. Dæmi eru um barnungar konur sem eru einstæðar mæður og eiginmenn þeirra hafa losað sig við.

Við skilnað eða dauðsfall maka færist forsjá yfir börnum yfir til föðurfjölskyldu. Konan missir þá börnin.

Að þessu viðbættu þá stafar íbúum stöðug ógn af hryðjuverkasamtökunum Al-Shabab, en á hverjum degi eiga sér stað aftökur Sharia dómstóla og sprengjuárásir í borginni Mogadishu.

Ritað hefur verið erindi til Forseta Íslands og sagt að málið þoli enga bið. Það er með hreinum ólíkindum að Ísland sem telur sig vera í forystu fyrir kvenfrelsi skuli loka dyrum sínum þegar þessar viðkvæmu konur leita til okkar. Þessar konur sem hér um ræðir, Fatma og Natifa, bjuggu á götunni í Grikklandi við hungur og kulda og miklar hættur frá umhverfinu í formi skipulagðrar glæpastarfssemi, þ.m.t. vændis og mansals.

This petition had 2,487 supporters

Petition Updates

Share this petition

Petition created on May 21, 2022