Áskorun til ASÍ, mennta og menningarmálaráðuneytis og Reykjavíkurborg

The Issue

Samband íslenskra myndlistarmann  frá sér meðfylgjandi áskorun:

 •    Samband íslenskra myndlistarmanna skorar á rekstarfélag Listasafns ASÍ og Alþýðusamband Íslands að endurskoða sölu á Ásmundarsal við Freyjugötu.

•     Samband íslenskra myndlistarmanna skorar á mennta- og menningarmálaráðuneytið og Reykjavíkurborg að koma að málum Listasafns ASÍ og fara yfir tillögur varðandi áframhaldandi rekstur sérhæfðs sýningarrýmis í Ásmundarsal við Freyjugötu.

Yfirlýsing frá SÍM

Þann 29. apríl 2016  tilkynnti Rekstrarfélag listasafns ASÍ um fyrirhugaða sölu á Ásmundarsal, húseign safnsins að Freyjugötu og væntanlegan flutning safnsins í nýtt húsnæði.

Stjórn SÍM harmar að þessi staða sé komin upp, að hafið sé söluferli á einu sögufrægasta húsnæði íslenskrar listasögu, án þess að til samráðs við hagsmunaaðila hafi komið. Tíðindin hafa komið listasamfélaginu í opna skjöldu. Ríkjandi er tvenns konar óvissa, annars vegar um framtíð Listasafns ASÍ og sýningarmöguleika á safneigninni og hins vegar varðandi framtíðareignarhald á Ásmundarsal.

Stjórn SÍM telur brýnt að listasafn ASÍ skýri hvernig framtíðin verði á sýningum á sögufrægri safneign safnsins. Safneignin telur mörg verk eftir fremstu listamenn þjóðarinnar, svo sem Ásgrím Jónsson, Gunnlaug Scheving, Jóhannes Kjarval, Jón Stefánsson, Júlíönu Sveinsdóttur, Nínu Tryggvadóttur, Svavar Guðnason og Þorvaldi Skúlason. Safneignina hefur listasafn ASÍ eignast eftir virka söfnun, eftir stofngjöf frá Ragnari í Smára og eftir gjafir frá ýmsum myndlistarmönnum.

Stjórn SÍM telur einnig mikilvægt að framtíð Ásmundarsals verði skýrð. SÍM telur að hætta ætti við fyrirhugaða sölu á Ásmundarsal, eða að öðrum kosti tryggja að salurinn verði í eigu aðila sem munu sinna myndlist. Ásmundur Sveinsson myndhöggvari, einn af fremstu myndhöggvurum þjóðarinnar, lét reisa húsið. Húsið er sérhæft til að vinna að höggmyndalist og eitt af fáum sérhæfðum rýmum sem nýtast til að vinna að myndlist sérstaklega. Ósk Ásmundar var sú að húsið yrði nýtt eftir hans dag í þágu myndlistar. Stjórn SÍM telur annað en að verða við ósk Ásmundar Sveinsson vera virðingarleysi.

Stjórn SÍM telur heppilegast að safnið starfi í óbreyttri mynd í Freyjugötu, enda fara þá áfram saman hagsmunir safneignar Listasafns ASÍ og framtíð Ásmundarsals. Að öðrum kosti telur stjórn SÍM að vinna ætti að því að tryggja að sérstaða Ásmundarsals verði áfram undirstrikið og tryggð, með því að salurinn nýtist áfram til að sinna myndlist eða myndlistartengdu starfi. Stjórn SÍM lýsir sig reiðubúið að koma á samtali við Listasafn ASÍ og viðeigandi hagsmunaaðila, svo sem mennta- og menningarmálaráðuneytið, Listasafn Íslands og Reykjavíkurborg, og vinna að tillögum í þessa veru í samvinnu við Listasafn ASÍ og rekstrarfélag þess.

Að lokum bendir stjórn SÍM á að tímasetning tilkynningarinnar er afar óheppileg. Óvissan um framtíð Listasafns ASÍ hefur verið fáum listamönnum fagnaðarefni og skyggnt á yfirstandandi hátíðarhöld, nú þegar 100 ár eru liðin frá stofnun ASÍ.

 Ólíklegt verður að telja að 100 ára afmæli ASÍ marki þau tímamót að sambandið hætti alfarið afskiptum af myndlist og breyti um stefnu vegna hins fræga listasafns sem sambandið á. Því er brýnt að ASÍ taki undir með SÍM um nauðsyn þess að hverfa frá fyrirhugaðri sölu á Ásmundarsal og skoði með SÍM möguleika á frekari nýtingu rýmisins í þágu myndlistarinnar.

avatar of the starter
Samband íslenskra myndlistarmannaPetition Starter
This petition had 1,535 supporters

The Decision Makers

sim@sim.is
sim@sim.is

Petition Updates