Ríkisborgararétt fyrir Blessing, Mary og Esther!

The Issue
Blessing, Mary og Esther komu til Íslands í leit að skjóli og vernd fyrir fjórum til sex árum á flótta frá mansali. Hér var þeim neitað um vernd og í fyrra sumar voru þær allar sviptar þeirri grunnþjónustu sem fólk á flótta á rétt á. Það þýðir að þær hafa í tæpt ár verið heimilislausar, án réttinda til atvinnu og án nokkur ríkisstuðnings til þess að uppfylla grunnþarfir manneskjunnar.
Vegna sérstakrar stöðu þeirra, sem íslensk stjórnvöld bera alfarið ábyrgð á, hafa þær sótt um íslenskan ríkisborgararétt. Viðbrögð íslenskra yfirvalda voru að handtaka þær og reyna að frelsissvipta og verið er að undirbúa að flytja þær nauðugar til Nígeríu, þar sem þær eru í stórhættu á að verða fyrir frekara ofbeldi.
Þessu ríkisofbeldi gegn Blessing, Mary og Esther verður að linna! Þær komu til okkar í leit að vernd frá ofbeldi. Það er á okkar ábyrgð að tryggja að þær verði ekki aftur þolendur mansals.
Við undirrituð krefjumst þess að fyrirhuguð brottvísun kvennanna verði stöðvuð og þeim veittur íslenskur ríkisborgararéttur sem allra fyrst.

2,047

Petition created on May 10, 2024