ÁSKORUN UM ÚRRÆÐI FYRIR ÞOLENDUR RAKA OG MYGLU Í HÚSUM

The Issue
Við undirituð óskum eftir því að embætti Landlæknis og Velferðarráðuneytið leiti úrræða fyrir einstaklinga sem fengið hafa einkenni, misst heilsu og jafnvel starfsorku við það að búa eða starfa þar sem er raki og mygla í húsnæði.
Það þarf að leita leiða til þess að auka þekkingu fagaðila í samræmi við skýrslu WHO varðandi raka, myglu og heilsu og þær rannsóknir sem liggja fyrir í dag ásamt því að bæta meðferðarúrræði. Í nágrannalöndum okkar eru í boði úrræði og eftirfylgni fyrir fólk sem lendir í þessum erfiðu aðstæðum. Við förum fram á að slíkt verði einnig í boði hérlendis.
Það eru margir sem hafa reynslu af því að missa heilsu vegna raka og myglu í húsnæði. Það er því mikilvægt að senda áskorun til yfirvalda þar sem úrræði í dag eru engin. Einstaklingar missa heilsu og starfsorku ásamt því að að tapa oft stórum fjármunum vegna eigna og búslóða. Það er ekki ásættanlegt að fólk sé þannig svipt lífsgæðum og að engin úrræði eða aðstoð sé í boði að hálfu tilheyrandi yfirvalda.
GRÓ hvetur alla til að skilja eftir smá lýsingu á afhverju þetta er svona mikilvægt eða segja frá sinni reynslu.

Petition Closed
Share this petition
The Decision Makers
Petition Updates
Share this petition
Petition created on October 4, 2015