Vertu Refsari

The Issue

Við, undirrituð, förum fram á að Forseti Íslands uppfylli skyldur sínar samkvæmt Stjórnarskrá Lýðveldisins Íslands frá 1944, með síðari breytingum (héreftir stjórnarskrá).

Við leggjum til að Forseti beiti einu af mörgum tvíræðum ákvæðum og gerist Refsari, í anda myndasöguhetjunnar Frank Castle, og taki þannig við löggæslu þar sem lögregluna þrýtur umboð eða úrræði.

Við teljum ljóst að Forseti hafi skýrar skyldur til þess í samræmi við 11. gr., 2. mgr. Stjórnarskrár. En þar segir: „Forseti verður ekki sóttur til refsingar, nema með samþykki Alþingis.“

Svokallaðir „fræðimenn“ hafa túlkað þetta ákvæði sem vörn forseta gegn dómsvaldinu nema með atbeina löggjafans.

Við teljum hinsvegar að lýðræði þýði að allar hugmyndir séu jafnar, jafnt lærðar sem leiknar, og því sé okkar óupplýsta túlkun alveg jafn góð, eða jafnvel betri, en þær sem „fræðimenn“ hafa ritað. Að því gefnu að meira en 10% þjóðarinnar fáist til að skrifa undir þessa áskorun.

Við teljum ljóst, að væri þessi málsgrein ætluð, eins og fræðimenn hafa talað fyrir, sem vörn Forseta gegn ágangi dómsvalds, þá myndi hún hljóma einfaldlega sem svo: „Forseti verður ekki sóttur til saka, nema með samþykki Alþingis.“

Við teljum ljóst að ákvæði þetta merki einfaldlega að Forseti sé aukinheldur Refsari, og að aðeins Alþingi geti sótt hann á Bessastaði til að gera honum að refsa einhverjum.

Í núverandi ástandi, þar sem erlendar glæpaklíkur herja á Ísland, og þrífast í skjóli svokallaðra mannréttinda og jafnræðisreglu, og lögreglan virðist eiga erfitt með að athafna sig gegn þeim, þá teljum við einboðið að Forseti uppfylli þessa skyldu sína.

Við, undirrituð, skorum því á Forseta að senda forseta Alþingis bréf, þar sem hann tilkynnir honum að hann sé tilbúinn til að uppfylla skyldur sínar sem Refsari.

Ennfremur skorum við á Alþingismenn að sækja Forseta til bústaðar síns og nota hann til refsinga, þar sem við á.

Virðingarfyllst,
undirrituð.

This petition had 27 supporters

The Decision Makers

Ólafur Ragnar Grímsson
Ólafur Ragnar Grímsson
Forseti Íslands

Petition Updates

Share this petition

Petition created on May 24, 2012