Við mótmælum byggingu íbúða við Furugrund 3

The Issue

Við undirrituð skorum á bæjarstjórn Kópavogsbæjar að verða ekki við þeirri beiðni Magna ehf, eiganda Furugrundar 3, að breyta verslunar- og þjónustuhúsnæði hverfisins í litlar íbúðir.

Við, íbúarnir í hverfinu, erum afar ósátt við það hvernig tillögur að breytingum hafa verið kynntar okkur, og að þröngva eigi breytingum á aðalskipulagi í gegn, þvert á vilja okkar. Við köllum eftir samráði við okkur um framtíðarnotkun húsnæðisins þó fyrr hefði verið. Margar hugmyndir eru meðal íbúa um notkun á húsnæðinu í þágu íbúa hverfisins. Má þar helst nefna að bæta úr húsnæðisvanda Leikskólans Furugrundar og Snælandsskóla. Einnig hafa komið fram hugmyndir um að hafa þar þjónustu við fatlaða og/eða aldraða íbúa bæjarins, bókasafn og annað í þeim dúr.  

Snælandshverfið er þegar þéttbyggt með tilheyrandi umferðar- og bílastæðavanda. Hverfið einkennist af því að hér eru annars vegar mjög margar litlar íbúðir og hins vegar stærri einbýlishús. Litlar 2ja-3ja herbergja íbúðir eins og stendur til að byggja eru alls ekki það sem vantar í hverfið. 

Við skorum á ykkur sem sitjið í bæjarstjórn og boðuðu aukið íbúasamráð að fara ekki þá leið að láta byggingaverktaka stjórna framtíðarskipulagi á hjarta okkar hverfis. Nýtið frekar tækifærið til að bregðast við þeim húsnæðisvanda sem Leikskólinn Furugrund og Snælandsskóli búa við. Ljóst er að annað eins tækifæri mun ekki standa til boða í bráð, ef þá nokkurn tíma.

Íbúar í Snælandshverfi

This petition had 327 supporters

The Decision Makers

Bæjarstjórn Kópavogsbæjar
Bæjarstjórn Kópavogsbæjar

Petition Updates

Share this petition

Petition created on November 24, 2014