Leyfum albönsku Dega fjölskyldunni að setjast að á Íslandi!

The Issue

Albanska Dega fjölskyldan fékk svar sitt frá Útlendingastofnun, dagsett 7. janúar 2016, og var þeim neitað um hæli hér á landi. Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum, nú nýverið, eru þau fimm manna fjölskylda sem hefur verið hér á landi síðan í lok júlímánaðar 2015.

Með þessum undirskriftum hvetjum við Útlendingastofnun til þess að breyta ákvörðun sinni hið snarasta. 

Stuttlega um þeirra mál: Eftir margskonar hremmingar í heimalandinu árin 2013-2015 tóku hjónin Skender og Nazmie Dega þá ákvörðun að fara eins langt frá heimalandinu og hægt var og varð Ísland fyrir valinu. Þekktu þau ekki neinn á Íslandi eða neinn sem hafði áður leitað hælis hér á landi. Aðal ástæður þeirrar ákvörðunar voru einkum þær að elsti sonur hjónanna varð mjög alvarlega veikur á geði og vildi yfirgefa landið og fara eins langt í burtu innan Evrópu og hægt var. Fékk hann ekki réttmæta þjónustu þar í landi þar sem mikil spilling ríkir í heilbrigðiskerfinu sem og annars staðar. Stjórnmálaþátttaka föðurins á árum áður setti þar stórt strik í reikninginn þar sem flokkurinn hans beið afhroð í kosningum 2013, sem leiddi til þess að hans helsti mótherji náði ríkjum í þeirra borg og í framhaldi var þeim hjónum sagt upp störfum og þeim og börnum þeirra ítrekað hótað líkamsmeiðingum og lífláti. Í kjölfar uppsagna hjónanna og ríkjandi spillingar, fékk fjölskyldufaðirinn heilablóðfall og lamaðist að hluta til. 

Úr varð að fjölskyldan, sem telur hjón og þrjú börn þeirra, pakkaði saman og hélt til Íslands. Þau hafa náð einstökum árangri í að aðlagast og eru mjög áhugasöm um að kynnast öllu sem er "íslenskt". Íslenskukunnátta þeirra er mjög góð og eru börnin öll í mjög góðum málum eins og fram hefur komið í fjölmiðlum. Elsti drengurinn Visar, er í endurhæfingu á Laugarási ásamt viðeigandi lyfjameðferð og er hann búinn að taka stakkaskiptum á þessum tíma sem þau hafa dvalið hér á Íslandi. Miðjubarnið Joniada er, að sögn Skólastjóra Flensborgarskólans í Hafnarfirði, fyrirmyndarnemandi sem er mikill fengur fyrir íslenskt samfélag. Yngsti drengurinn, Viken 10 ára, stundar nám við Lækjarskóla í Hafnarfirði og blómstrar í skólanum ásamt því æfir hann fótbolta með FH. Móðurinni, Nazmie, hafa boðist tvö atvinnutækifæri hér á landi, nú þegar, en hún hefur ekki rétt á að byrja að vinna þar sem ekki er um íslenskan ríkisborgara að ræða.

Hægt væri að skrifa endalaust um þeirra mál en hér að ofan er einungis stiklað á stóru.

Við þurfum nýtt líf fyrir börnin okkar

Sagt upp því hún vildi ekki skipta um stjórnmálaflokk

Við Íslendingar, samheldni okkar og hjálpsemi, er eitthvað sem Dega fjölskyldan þarfnast.

ÁFRAM ÍSLAND :)

This petition had 3,841 supporters

The Decision Makers

Útlendingastofnun
Útlendingastofnun

Petition Updates