Stöðvum brottvísun barnanna Ali, Kayan, Saja og Jadin til Grikklands!

The Issue

Áslaug Arna á Alþingi, 17. febrúar 2020:
"Þetta eru sérstakar ástæður þar sem hægt er að fá efnismeðferð þannig að það er rangt hjá hv. þingmanni, sem hann heldur hér fram, að við sendum einstaklinga alveg sjálfkrafa á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar til baka. Það eru tvö lönd í dag sem við sendum ekki til baka vegna stöðu þeirra þar og það eru Grikkland og Ungverjaland."

Í þessari ræðu á Alþingi lýsir dómsmálaráherra því yfir að stefna stjórnvalda sé að brottvísa ekki fólki á flótta til Grikklands á forsendum Dyflinnarreglugerðarinnar. Þrátt fyrir þessi orð dómsmálaráðherra bíða nú systkinin Ali, sem er níu ára, Kayan, sem er fimm ára, Saja, sem er fjögurra ára og Jadin, sem er eins árs, eftir því að vera brottvísað til Grikklands eftir að þeim var neitað um vernd hér á landi. 

Systkinin, og foreldrar þeirra, sem eru fædd 1993 og 1995, hafa verið á flótta frá árinu 2017 þegar þau flúðu pólitískar ofsóknir, ofbeldi, pyntingar og aðrar hörmungar í heimalandinu Írak. Flótti þeirra leiddi þau til Grikklands og þrátt fyrir að það hafi ekki staðið til að sækja þar um vernd vegna aðstæðna fólks á flótta í landinu neyddust þau hins vegar til þess. Tíminn þeirra á Grikklandi var fjölskyldunni mjög erfiður. Þau bjuggu við óásættanlegar aðstæður og áttu varla fyrir mat, fatnaði eða öðrum nauðsynjum. Aðgengi að heilbrigðisþjónustu var af skornum skammti, lítið sem ekkert húsnæði var að fá, skólaganga var takmörkuð og enga atvinnu var að fá á Grikklandi. Þar að auki upplifði fjölskyldan mikið óöryggi, hræðslu og vanlíðan þegar þau voru á Grikklandi, meðal annars vegna mikilla kynþáttafordóma, ofbeldis og ítrekaðra árása af höndum grískra öfgahópa á fjölskylduna, en í einni þeirra var móðir barnanna handleggsbrotin.

Þrátt fyrir að leita ítrekað til lögreglunnar breyttist ekkert. Fjölskyldufaðirinn sá því ekki annan valkost en að yfirgefa Grikkland vegna ótta um börnin sín og konu. Fjölskyldan kom til Íslands árið 2019 og sótti um vernd hér. Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála hafa ekki tekið umsókn fjölskyldunnar um vernd til efnislegrar meðferðar heldur hefur þeim verið tilkynnt að á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar verði fjölskyldan send úr landi og aftur til Grikklands. Sem þýðir að þau verða senda aftur á götuna. Aftur á flótta. Aftur í eymd, óöryggi, ótta og óvissu.

Ítrekað hefur verið sýnt fram á skelfilegar aðstæður flóttafólks á Grikklandi. Aðstæður sem meðal annars var fjallað nýlega um í fréttaskýringaþættinum Kveik og í sjónvarpsþáttum á Hringbraut. UNICEF, Rauði krossinn, hjálparsamtök og fjöldi annarra alþjóðastofnana, samtaka og aðila hafa ítrekað fordæmt brottvísanir á börnum til Grikklands og biðlað til stjórnvalda um að hætta því enda eru börn á flótta eru oft í verri stöðu eftir að þau hafa fengið vernd á Grikklandi en áður en þau fá vernd. Það er ekki með nokkru móti hægt að réttlæta brottvísanir á börnum til Grikklands.

Þrátt fyrir að stefna stjórnvalda feli í sér að brottvísa ekki fólki á flótta til Grikklands á forsendum Dyflinnarreglugerðarinnar telja stjórnvöld greinilega að aðstæður séu eitthvað betri eftir að fólk fær vernd í Grikklandi en Rauði krosinn er á meðal þeirra sem hafa bent á að aðstæður barna á flótta séu verri eftir að þau fá vernd en á meðan þau eru í hæliskerfinu. Við skorum á dómsmálaráðherra og íslensk yfirvöld að hætta alfarið að brottvísa fólki á flótta til Grikklands. Við skorum á íslensk stjórnvöld að stöðva þar af leiðandi strax brottvísun Ali, Kayan, Saja og Jadin og taka umsókn þeirra um vernd til efnislegrar meðferðar! 

#ekkiímínunafni

Meira um mál fjölskyldunnar hér:
https://www.mannlif.is/frettir/innlent/samfelag-innlent/aetla-ad-visa-fjorum-bornum-undir-niu-ara-ur-landi/

https://www.facebook.com/semaerla/posts/10159541415444202

https://www.facebook.com/notes/solaris-hj%C3%A1lparsamt%C3%B6k-fyrir-h%C3%A6lisleitendur-og-fl%C3%B3ttaf%C3%B3lk-%C3%A1-%C3%ADslandi/stj%C3%B3rn-solaris-ford%C3%A6mir-brottv%C3%ADsanir-%C3%A1-fl%C3%B3ttab%C3%B6rnum-til-grikklands/1509301799247327/

https://www.althingi.is/altext/raeda/150/rad20200217T152646.html?fbclid=IwAR10xzRarJ37TimcPw6VP7qNgh1HI5De6-_yOYK-GpUarzjCiKW8LXitoJE

avatar of the starter
Sema ErlaPetition Starter
This petition had 7,488 supporters

The Decision Makers

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
Útlendingastofnun
Útlendingastofnun

Petition Updates