Áskorun um að fundin verði framtíðarlausn fyrir íbúa í hjólhýsastæðunum í Laugardalnum.

This petition had 556 supporters

The Issue

Við undirrituð skorum á Reykjavíkurborg að hefja tafarlaust samtal við íbúa í langtímastæðum á tjaldsvæðinu í Laugardal svo finna megi framtíðarstaðsetningu fyrir heimili þeirra. Það að fá einungis tímabundna leigusamninga veldur gríðarlegri óvissu með tilheyrandi kvíða fyrir íbúa. Íbúar hafa margreynt að fá úrlausn sinna mála og að fá sæti við samningsborðið án árangurs. Það er löngu kominn tími til að á þau sé hlustað og kröfur þeirra teknar alvarlega. 

Hér er um að ræða venjulegt fólk sem kýs óhefðbundið búsetuform en kemur alls staðar að lokuðum dyrum. Þess ber jafnframt að geta að Reykjavíkurborg hefur engin önnur úrræði að bjóða þeim sem kjósa þetta búsetuform, enda telja biðlistar eftir félagslegu leiguhúsnæði mörghundruð manns og almennur leigumarkaður er ömögulegur og fjandsamlegur fólki með tekjur undir lágmarkslaunum.

Leigusamningar íbúanna renna út 15. maí næstkomandi og mun þá íbúum vera vísað af svæðinu án þess að Reykjavíkurborg hafi fundið þeim annan samastað. Það er ólíðandi og það hlýtur að vera til betri lausn en að senda fólk á vergang.

Nokkrar umfjallanir sem komið hafa í fjölmiðlum undanfarin ár.
Íbúar hjólhýsabyggðar í Laugardal uggandi - Sjónvarp - Vísir (visir.is)
Í­búar í hjól­hýsa­byggð berjast fyrir varan­legri stað­setningu - Vísir (visir.is)
„Af hverju má mér ekki líða vel?“ - Vísir (visir.is)
Ófremdarástand í Laugardal - Samfarir á salerninu og óþrifnaður: „Oft stimpluð sem hyskið í dalnum“ - DV
Íbúar á tjaldsvæðinu í Laugardal vilja framtíðarlausn - RÚV.is (ruv.is)
Áhyggjur af hjólhýsafólki í Laugardal (mbl.is)

Petition Updates