Viđ krefjumst sýknunar fyrir Erlu Bolladóttur.

The Issue

Við krefjumst réttlætis fyrir Erlu Bolladóttur vegna framgöngu dóms- og lögregluyfirvalda í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu. 

Erla var dæmd fyrir meinsæri á sínum tíma en löngu er ljóst að vitnisburður Erlu var þvingaður fram. Í dómi héraðsdóms þann 4. janúar síðastliðinn segir að ekki liggi ljóst fyrir að sakfelling Erlu á sínum tíma styðjist við næg gögn sem ekki séu hafin yfir allan vafa.

Framganga yfirvalda í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu er svartur blettur á réttarsögu Íslands. Fimm aðrir sakborningar fengu mál sín endurupptekin og voru í kjölfarið sýknaðir. Erla Bolladóttir er enn neydd til að berjast fyrir réttlæti í máli sínu en staðan er orðin verulega vandræðaleg fyrir dómsmálayfirvöld þar sem ljóst er orðið að sakborningar komu hvergi nærri hvarfi Guðmundar og Geirfinns. Þó áttu þeir að hafa tekið saman ráð sín um að koma sökinni yfir á ađra fjóra saklausa menn en játuðu á sig sökina á sama tíma. Dómsmálayfirvöld hanga á því einu að þegar Erla skrifaði undir skýrslu sem vitni, þá var hún ekki gæsluvarðhaldi. ( þó svo hún hafi ekki veriđ í gæsluvarðhaldi var hún engu ađ síđur undirokuđ einbeittum vilja þessara manna).

Skýrslur réttarsálfræðinganna Gísla Guðjónssonar og Friðriks Sigurðssonar útskýra með skýrum hætti hvernig rannsóknarlögreglumenn voru í tíðum samskiptum við Erlu vikurnar fjórar sem leiddu til undirritunar hennar á röngum sakargiftum og að Sævar hafi undirritað slíka skýrslu daginn áður. Samnefnari þeirra fjölda skýrslna og yfirheyrslna sem fram fóru er aðeins einn, rannsóknarlögreglumenn sem hafa kosið að þegja þunnu hljóði þrátt fyrir þær alvarlegu sakir sem á þá eru bornar, auk þess sem þeir bentu hver á annan sem vitni í dómsal árið 2016, aðspurðir um hver hafi stjórnað rannsókninni. 

Öllum má vera ljóst það andlega og líkamlega harđræđi sem Erla mátti þola. Auk þess hafđi hún fætt sitt fyrsta barn aðeins 11 vikum áður en hún var upphaflega sett í einangrun, án nokkurra upplýsinga um hvar barnið væri niðurkomið. Erla sat saklaus í einangrun í 239 daga. Þess til viðmiðunar þá má benda á það að í dag má ekki halda einstaklingum í einangrun lengur en 30 daga samkvæmt íslenskum lögum, þar sem það er vitað að einangrun er mannskemmandi. 

Fari svo að ekki verði gengist við kröfum okkar hér á landi, mun listinn fylgja málinu ef það fer fyrir Mannréttindadómstól Evrópu.

Við stefnum á að minnsta kosti 25.000 undirskriftir, sem verða afhentar Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra. Því fleiri því betra, við látum ekki staðar numið fyrr en þið gerið það sjálf.

Ábyrgðarmaður fyrir undirskriftasöfnuninni er:
Birna Björgvinsdóttir, verkefnastjóri.

This petition had 2,293 supporters

Petition Updates

Share this petition

Petition created on September 16, 2022