#Pítsuréttindi! Við krefjumst afsagnar Guðna Th. Jóhannessonar strax!

The Issue
Þann 16. febrúar 2017, gaf Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, fram þá skoðun hans að það ætti að banna flatbökur (pítsur) með ananas-álegg. Þessi ummæli hans eru hrein og bein árás á þá fjölmarga ananas-pítsu elskendur sem hafa kallað þetta land heimili sitt án aðkasta í þúsundir ára. Ef Guðni fær sínu fram, mun það án efa koma á borgarastyrjöld meðal íslendinga, sem ananas-pítsu elskendur hafa ekki hugsað sér að tapa.
Fyrir mörg okkar erum við líka svikin af Guðna Th., þar sem hann valdi að sitja á þessum öfgafullu skoðunum sínum, fram yfir forsetakosningarnar. Því hljóta úrslit forsetakosninganna 2016 að verða ógild, þar sem ómögulega er hægt að styðja slíkan öfgamann í opinberu embætti, hvað þá sem fulltrúa lýðveldisins.
Við krefjumst þess að Guðni Th. Jóhannesson annað hvort stigi til hliðar sem forseti Íslands, eða sýni virðingu í verki og borðar eina 16" Hawaii pítsu, sem og biðja alla ananas-pítsu elskendur Íslands formlega afsökunar.
Við sameinumst undir kjörorðinu: "Allar pítsur eiga að ganga jafnar til borðs!" og undir myllumerkinu #Pítsuréttindi
Lifi byltingin!

Petition Closed
Share this petition
The Decision Makers
Petition Updates
Share this petition
Petition created on February 16, 2017