Petition updateBönnum loðdýraeldi á Íslandi

Tvö­falt fleiri and­víg loð­dýra­rækt á Ís­landi en hlynnt

Rósa DarradóttirReykjavík, Iceland
Sep 15, 2026

Niðurstöðurnar komi ekki á óvart
Rósa Líf Darradóttir, formaður Samtaka um dýravelferð á Íslandi, segir niðurstöðuna sýna að stuðningur við loðdýrarækt sé lítill og að mun fleiri vilji hætta starfseminni en halda henni áfram.

„Það kemur okkur ekki á óvart. Aukin þekking á velferð dýra hefur sýnt að ómögulegt er að réttlæta það að halda dýrum í búrum alla ævi til þess eins að nýta feld þeirra,“ skrifar Rósa í tilkynningu frá samtökunum.

„Það liggur í augum uppi hvert næsta skref er. Starfsemin hér á landi er orðin mjög takmörkuð, minkur er framandi og ágeng tegund og opinbert fé hefur ítrekað farið í að styðja við starfsemina. 

Fjöldi Evrópuríkja hefur þegar ákveðið að loðdýrarækt eigi ekki heima í nútímasamfélagi. Ísland hefur alla burði til að standa framarlega þegar kemur að dýravelferð og vernd náttúrunnar. Nú verða stjórnvöld að gera hið rétta, svara kalli tímans og banna loðdýrarækt á Íslandi,“ skrifar hún. 

Copy link
WhatsApp
Facebook
Nextdoor
Email
X