Petition updateAfturköllum brottvísun Fatma og Nadifa

Jón Gunnarsson stærir sig af mannréttindabrotum

Gunnar WaageReykjavík, Islande
6 juin 2022

"Það hafa engar breytingar verið gerðar og það er nú kannski ástæða til þess að minnast á það hversu lítið innihald var fyrir öllum þeim gífuryrðum sem hér hafa fallið um þessi mál."


Þetta eru orð Jóns Gunnarssonar í fyrradag. Hann álítur sem sagt okkur fara fram með gífuryrðum. Ég veit ekki betur en að erindi okkar hafi verið borið upp af fyllstu kurteisi.


En það er rétt hjá honum að engar breytingar hafa verið gerðar, ráðuneytið hefur ekki brugðist við gagnrýni og hefur ekki sýnt af sér þann manndóm, að stöðva þessar ólögmætu brottvísanir.

Samkvæmt þessum orðum ráðherra þá mætti ætla að hann sé að fá eitthvað kikk út úr þessu, hann beinlínis stærir sig af mannréttindabrotum.

Copy link
Facebook
WhatsApp
X
Email