Bindum enda á stuðning Íslands við mismunun S​.​Þ. gagnvart Ísrael

The Issue

Kæri Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra

ég hvet þig til að binda enda á stuðning Íslands við óhóflegar og einhliða ályktanir Sameinuðu þjóðanna sem beita Ísrael mismunun og hlutdrægni.

Stofnanir Sameinuðu þjóðanna – allsherjarþingið, mannréttindaráðið, kvennanefndin, alþjóðaheilbrigðisstofnunin og menningarmálastofnunin (UNESCO) – beina spjótum sínum á hverju ári að Ísrael með óhóflegum og einhliða ályktunum, á meðan þær sniðganga djúpstæðan vanda milljóna fórnarlamba mannréttindabrota um allan heim.

Á allsherjarþinginu árið 2018, til dæmis, voru hlutdrægar ályktanir gegn Ísrael 21 talsins, á meðan Íran, Sýrland, Norður-Kórea, Krím, Mjanmar og Bandaríkin fengu hvert um sig aðeins eina ályktun gegn sér.

Á sama tíma voru engar ályktanir kynntar eða samþykktar um mannréttindabrot í Kína, Venesúela, Sádí-Arabíu, Hvíta-Rússlandi, Kúbu, Tyrklandi, Pakistan, Víetnam, Alsír og í 175 öðrum ríkjum.

Að sama skapi hefur Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna frá stofnun þess árið 2006 samþykkt fleiri ályktanir gegn Ísrael en samanlagt gegn Íran, Sýrlandi og Norður-Kóreu, boðað til fleiri neyðarfunda og rannsókna um Ísrael en nokkuð annað ríki, og heldur áfram að mismuna Ísrael í föstum dagskrárlið á hverju þingi.

Eins og sjá má í gagnagrunni UN Watch, greiða íslensk yfirvöld árlega atkvæði með 83% þeirra ályktana gegn Ísrael sem samþykktar eru af Allsherjarþinginu.
Það þarf auðvitað að draga stjórnvöld til ábyrgðar fyrir stöðu mannréttindamála í ríkjum þeirra. En það að hafa Ísrael stöðugt í brennidepli ber merki um hagsmunatengda og hlutdræga hegðun, á meðan sniðið er fram hjá alvarlegum og kerfisbundnum mannréttindabrotum annars staðar í heiminum.

Með því að verja takmörkuðu fjármagni Sameinuðu þjóðanna í gerð hlutdrægra og hagsmunatengdra skýrsla sem er beint gegn Ísrael eru fórnarlömb mannréttindabrota í ríkjum eins og Kína, Pakistan og Simbabve hunsuð.
Með því að greiða atkvæði með mörgum af þessum and-ísraelsku ályktunum, gengur Ísland gegn jafnræðisfrumreglunni sem er lögfest í sáttmála Sameinuðu þjóðanna og frumreglunum um algildi, óhlutdrægni og hlutleysi, eins og þær voru lagðar fram í stofnskjali mannréttindaráðsins (UNGA resolution 60/251).

Ég hvet íslensk yfirvöld til að halda í heiðri grunvallarreglum Sameinuðu þjóðanna með því að hætta öllum stuðningi við þráhyggjukennda neikvæða útmálun Ísraelsríkis, eina þjóðríkis Gyðinga, af stofnunum Sameinuðu þjóðanna. Það er kominn tími til að Sameinuðu þjóðirnar láti af kreddukenndri afstöðu sinni og stuðli í staðinn að mannréttindum allra.

avatar of the starter
UN WatchPetition StarterDefending human rights, monitoring the United Nations
This petition had 49 supporters

The Decision Makers

utanríkisráðherra Íslands
utanríkisráðherra Íslands

Petition Updates