Krafa til stjórnvalda að tryggja vernd barns gegn kynferðisofbeldi

The Issue

Við undirrituð fordæmum framgöngu stjórnvalda gagnvart móður sem er að verja barn sitt gegn kynferðisofbeldi föður og að móðir sé svipt forsjá yfir barni sínu fyrir það eitt að uppfylla frumskyldu sína sem er að vernda það gegn ofbeldi. 

Við mótmælum því að aðför verði heimiluð og barn fært með valdi frá verndandi móður og afhent föður sem beitt hefur barnið kynferðisofbeldi og í það minnsta tvö önnur börn.  

Við krefjumst þess að dómsmálaráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og félags- og barnamálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason axli ábyrgð í málinu og að ríkisstjórnin viðurkenni, eins og dæmin sýna að kerfið hefur brugðist börnum í ofbeldishættu. Við krefjumst þess að ríkisstjórnin leiðrétti þessa framkvæmd og bjargi þessu barni!  

Börn á Íslandi eiga rétt á vernd frá ofbeldi í allri ákvörðun um þeirra líf. Stjórnvöldum ber að gæta þess réttar og að framkvæmd sé sannarlega á grundvelli barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, barnalaga og barnaverndarlaga.   

Stjórnvöldum ber að virða markmið alþjóðasamninga sem ríkisstjórnin hefur sjálf fullgilt. Til að mynda Evrópuráðssamning frá 2012 um vernd barna gegn kynferðisofbeldi, sama hver brotamaðurinn kann að vera og Istanbúl-samning frá 2018, um að stjórnvöldum beri að tryggja að tekið sé tillit til ofbeldisbrota við ákvörðun forsjár- og umgengnisréttar við börn. 

---------

Forsvarskonur félagasamtakanna Líf án ofbeldis hafa lesið dóminn og önnur gögn sem fylgja málinu og staðfesta réttmæti frásagnar móður.

Frásögn móður og aðra umfjöllun um málið má lesa nánar hér:

https://www.facebook.com/permalink.php?story_fbid=389822805757455&id=111445176928554

https://stundin.is/grein/11307/

https://stundin.is/grein/9656/

avatar of the starter
Líf án ofbeldisPetition Starter

10,315

The Decision Makers

Ásmundur Einar Daðason félags og barnamálaráðherra

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra

Petition Updates