
Gudfinnur KristjanssonBudaors, Hungary
Feb 14, 2016
Í gær vorum við komin með 1.012 undirskriftir sem nú hefur fjölgaði í 1.072 undirskriftir.
Ég hef það á tilfinningunni að sumir sem sjá eitthvað um þessa undirskriftarsöfun hugsi með sér að þeir séu ekki skotmenn og þar með sé þetta ekki mál sem er skylt þeim. Hins vegar geri ég ráð fyrir því að flestir þekki eða viti af einhverjum sem stundar skotmennsku og ég vill hvetja það fólk til að lesa um þessa söfnun og endilega ljá okkur stuðning við þetta stóra hagsmunamál okkar skotmanna.
Samkvæmt skýrslu Umhverfisstofnunar þá hafa rannsóknir sýnt fram á að þeir sem stunda skotmennsku missi um það bil 7% af talsviðsheyrn fyrir hver fimm ár sem skotmennska er stunduð. Ég hef haft byssuleyfi í rétt rúm 35 ár og á því tímabili reiknast mér til að ég hafi verið virkur í skotmennsku í allaveganna 20 ár. Samhvæmt framangreindu þá má þá gera ráð fyrir því að ég hafi misst allaveganna 28% af minni talsviðsheyrni.
Mér finnst þetta alls ekki ólíklegt. Ég á stundum erfitt með að fylgja mæltu máli eftir og ef ég er í fjölmenni þá heyri ég svo til ekkert og mér einfaldlega líður illa. Að sjálfsögðu er þetta að miklu leyti mín eigin sök, þau voru allt of mörg árin þar sem ég notaði ekki heyrnarhlífar við skotmennskuna. Hins vegar, eins og skýrsla UST bendir á þá er það einfaldlega ekki nóg að nota heyrnarhlífar, meira þarf til. Besta tólið til að minnka þessar líkur á heyrnarskemmd eru hljóðdemparar á stærri riffla og, enn sem komið er, hef ég ekki heyrt nein haldbær rök gegn notkun á þessum hljóðdempurum.
Endilega lesið ykkur til um þetta málefni og sýnið ykkar stuðning við þetta stóra hagsmunamál skotmanna.
Copy link
WhatsApp
Facebook
Nextdoor
Email
X