Neuigkeit zur PetitionLeyfa hljóðdempara á riffla á Íslandi.

Endilega að halda uppi dampinum.

Gudfinnur KristjanssonBudaors, Ungarn
13.02.2016
Núna eru komnar 1.012 undirskriftir við þetta stóra hagsmunamál fyrir okkur skotmenn. Samkvæmt upplýsingum úr umsögn umhverfisstofnunar við breytingar á vopnalöggjöf frá 2012, þá voru á þeim tíma rétt tæplega 30.000 einstaklingar á landinu með skotvopnaleyfi. Af þeim má áætla að einhver stór hluti eigi skotvopn þar sem hljóðdempari á ekki við (haglabyssur, smærri riffla, skambyssur). Hins vegar eru á hverju ári rúmlega 4.000 umsóknir fyrir hreindýra veiðar sendar inn. Út frá þessu þá má áætla að á bilinu 4.000 til 30.000 „stærri rifflar“ geti verið í eigu landsmanna. Miðað við þessar tölur þá þurfum við að gera betur og fá fleiri undirskriftir. Vonandi leiðir þessi söfnun til þess að ráðherra, Ólöf Norðdal, taki eftir þessu málefni og skoði þetta nánar. Hér að neðan er úrdráttur úr umsögn UST þar sem rætt er um hljóðdempara: „Skotveiðimenn missa að jafnaði 7% af svonefndri talsviðsheyrn fyrir hver fimm ár sem skotveiðar eru stundaðar að marki samkvæmt erlendum rannskóknum. Þetta er ein ástæðan fyrir aukinni notkun hljóðdempara á rifflum víða erlendis. Háváði í dæmigerðum veiðiriffli (.308 Win kalíberinu) getur verið um 167 dB. Með hljóðdempara lækkar hávaðinn í 130 dB og veldur mun síður heyrnarskaða. Flestir hljóðdemparar lækka skothvell um 30-40 dB. Miklu munar hvort hvellur er undir eða yfir 140 dB gagnvart heyrnarskaða. Sá misskilningur virðist vera ríkjandi að hljóðdemparar á almenna veiðiriffla geri þá hljóðlausa en raunin er sú að eftir sem áður þarf að nota heyrnahlífar. Minni líkur eru á heyrnarskemmdum ef hljóðdemparar eru notaðir. Mörgum veiðimönnum þykir óþægilegt að nota eyrnatappa eða heyrnarhlífar vegna þessa að þeir eiga erfiðara með að heyra umhverfishljóð. Það má því segja að heyrnarhlífarnar séu settar á skotvopnið en ekki skyttuna. Notkun hljóðdempara þykir sömuleiðis æskileg vegna minni hljóðmengunar fyrir nærstatt fólk, fé og fugla.“
Link kopieren
WhatsApp
Facebook
E-Mail
X