Veitum Mehretab og Meseret dvalarleyfi á Íslandi!

The Issue

Við mótmælum eindregið þessari ákvörðun Kærunefndar útlendingamála og skorum á stjórnvöld að veita Mehretab Abraha og Meseret Tsegay dvalarleyfi af mannúðarástæðum.   

Mehretab (29) og Meseret (25) eru frá Erítreu, einræðisríki þar sem mannréttindi eru kerfisbundið fótum troðin. Um 5.000 manns flýja landið í hverjum mánuði og í þeirra hópi var þetta unga par.

Þau komu til Ítalíu á báti yfir Miðjarðarhafið. Þau komust. Bróðir Mehretab drukknaði í Miðjarðarhafi.

Meseret fékk hæli á Ítalíu og Mehretab landvístarleyfi. Aðstæður flóttamanna þar eru mjög slæmar og þau áttu erfitt uppdráttar. Það var erfitt að fá vinnu, þau voru svikin um laun og lentu í klónum á glæpamönnum. (Þess vegna verða þau að forðast að birta andlit sín á netið.) 

Þau komu til Ísland ári síðar og sóttu um hæli á ný. Útlendingastofnun synjaði þeim um hæli í júlí 2015 vegna þess að þau höfðu fengið leyfi á Ítalíu. Þau áfrýjuðu málinu til Kærunefndar útlendingamála. 

Heilsu þeirra hefur hrakað árin á flótta. Meseret missti fóstur í þriðja sinn rétt eftir komu til Íslands. Auk þess hefur Mehretab þurft læknisaðstoð vegna sýkingar í lungum. Þau fengu vinnu hér og Mehretab hefur líka setið tíma í iðnnámi. Meseret á von á barni eftir nokkra mánuði.

Í lok febrúar 2016 gaf Kærunefnd útlendingamála neikvætt svar. Hún telur að það sé í lagi að senda þau baka til Ítalíu. Landvistarleyfi Mehretabs þar er útrunnið.

Innanríkisráðherra Ólöf Nordal tjáið sig á Alþingi september sl. og sagði: „Íslendingar senda ekki hælisleitendur til baka til Grikklands nú um stundir. Grikkland er ekki talið öruggt land. Það á einnig við um Ítalíu og Ungverjaland, þau eru til viðbótar ekki talin örugg lönd. Það er ekki óhætt að senda fólk til baka þangað.“

Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna hefur líka nýlega komist að þeirri niðurstöðu að ekki megi senda flóttamenn til Ítalíu ef það er í viðkvæmri stöðu.

Engu að síður telur kærunefndin að Mehretab, sem er í meðferð vegna lungnasýkingar og Meseret, sem er í áhættumeðgöngu, ekki falla undir skilgreininguna „einstaklingar í viðkvæmri stöðu.”

Þetta álit Kærunefndar útlendingamála er ómannúðarlegt og við mótmælum því harkalega.

Við skorum á stjórnvöld að veita Mehretab Abraha og Meseret Tsegay dvalarleyfi af mannúðarástæðum án tafar.

29. febrúar 2016; Stuðningshópur við Mhretab and Meseret  

Fulltrúar:
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir
Sigfús Kristjánsson
Toshiki Toma
 
avatar of the starter
Stuðningshópur við Mehretab and MeseretPetition Starter
This petition had 2,588 supporters

The Decision Makers

Kærunefnd útlendingamála
Kærunefnd útlendingamála

Petition Updates

Share this petition

Petition created on February 29, 2016