Knatthús á Ásvöllum árið 2017

Petition Closed

This petition had 666 supporters

The Issue

Það er orðið löngu tímabært að bæta úr aðstöðuleysi knattspyrnudeildar Hauka.
Við trúum því að barn sem býr í Vallarhverfi eigi að geta æft knattspyrnu við svipaðar aðstæður og barn sem býr á Álfaskeiðinu.
Það er ekki raunin í dag og er brýnt að bæta úr því sem fyrst.

Rekstrarfélagið í kringum Risann hjá F.H. fékk á árunum 2008-2014 rúmlega 168 milljónir í leigutekjur fyrir Risann frá bænum og það án þess að bærinn eignaðist hlut í húsinu.
Miðað við þá upphæð sem þeir fengu árið 2014 má gera ráð fyrir að í dag séu þeir að fá rúmar 28 milljónir á ári frá bænum.

Við undirrituð skorum á Hafnarfjarðarbæ að gera samskonar samkomulag við rekstrarfélag tengt Haukum varðandi knatthús sem félagið er að undirbúa. Þetta myndi gera félaginu kleift að fá aðila hliðholla Haukum til að fjármagna framkvæmdina og hefja byggingu um leið og framkvæmdarleyfi fæst. Einnig skorum við á bæinn að vinna með Knattspyrnufélagi Hauka í undirbúningi svo að ekki verði óþarfa tafir á að húsið komist á deiliskipulag.

The Decision Makers

Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði

Petition Updates