Við mótmælum harðlega frumvarpi til laga um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur

The Issue
Við, undirrituð, mótmælum harðlega fyrirhuguðum lögum um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur. (http://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/?ltg=148&mnr=202
Verði þessi lög samþykkt þá munu þetta vera ólög. Aðgengi að og kostnaður við notkun rafrettna mun snarversna. Rafrettur eru öflugasta tækið til að hætta tóbaksnotkun sem hefur komið á markað. Rannsóknir hafa sýnt að rafrettur eru a.m.k. 95% skaðminni en reykingar. (https://www.gov.uk/government/news/e-cigarettes-around-95-less-harmful-than-tobacco-estimates-landmark-review
Því ættu stjórnvöld að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að hvetja til notkunar þeirra sem tæki til að hætta tóbaksnotkun en ekki leggja stein í götu þeirra sem vilja hætta tóbaksnotkun með hjálp þeirra.
Stórar erlendar rannsóknir hafa einnig sýnt að hættan á að börn ánetjist nikótíni vegna rafrettna er hverfandi. Flest börn sem nota rafrettur að staðaldri notuðu tóbak í einhverju formi áður. (https://www.theguardian.com/society/2017/aug/29/fears-over-e-cigarettes-leading-to-smoking-for-young-people-unfounded-study
Þeir flokkar sem kjósa með þessu frumvarpi eða breytingartillögu meirihluta velferðarnefndar eiga ekki möguleika á okkar atkvæði í næstu kosningum. Að sama skapi munum við kjósa gegn þeim þingmönnum sem kjósa með þessu frumvarpi í prófkjörum og öðru vali á lista sinna flokka.
Við getum ekki réttlætt það að kjósa flokk sem berst á móti bættri heilsu og skaðaminnkandi leið fyrir reykingarfólk. Hvað þá flokk sem ræðst með þessum hætti að frelsi einstaklingsins og gerir það að engu.

Petition Closed
Share this petition
The Decision Makers
Petition Updates
Share this petition
Petition created on 6 June 2018