Samstaða með Palestínu

Petition Closed

This petition had 2,844 supporters

The Issue

Krefjumst þess að íslensk stjórnvöld taki skýra afstöðu með Palestínu og setji viðskiptabann á Ísrael þar til:

- Þjóðernishreinsunum í Sheikh Jarrah verði hætt
- Linnulausum árásum á Gaza svæðið linni
- Landráni á landi Palestínumanna verði stöðvað

Yfirlýsing íslenskra stjórnvalda á fundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna tekur ekki skýra afstöðu gegn mannréttindbrotum og þjóðernishreinsunum Ísraela og nú er löngu kominn tími til að sýna hugrekki í alvöru aðgerðir.

Ísrael og Palestína standa ekki jöfnum fæti og á meðan Ísrael er ekki þvingað til þess að fara eftir alþjóðalögum þá er engin von að á komist friður. Það verður að neyða hernámsveldið Ísrael til að fylgja alþjóðalögum og sinna sínum skuldbindingum gagnvart Palestínu.

Ísland hefur verið leiðandi viðurkenna sjálfstæði þjóða og var fyrst til þess að viðurkenna sjálfstæði Litháen, Eistlands og Svartfjallalands en ásamt því fyrsta norðurlandaþjóðin til að viðurkenna Palestínu. Þvi miður hafa aðstæður Palestínumanna ekki batnað frá viðurkenningu Íslands enda hefur Ísrael haldið áfram landráni og þjóðernishreinsunum. Ísland verður að vera leiðandi í að jafna þetta óréttlæti og þvinga Ísrael til að virða rétt Palestínu. Endalausar yfirlýsingar og samningaumleitanir hafa engan árangur borið og hefur Ísrael eingöngu aukið tangarhald sitt á Palestínu með auknu landráni, þjóðernishreinsunum og drápum. Þvi miður hafa stjórnvöld lítinn skilning á alvarleika málefnisins sem vel má sjá í yfirlýsingum forsætisráðherrans, þann 18. maí síðastliðinn, þar sem lítið brot af efnahagi Íslands er talinn mikilvægari en aðgerðir gegn þjóðernishreinsum, arðráni, landráni, morðum og hernámi.

Þann 18 maí hafa 228 verið drepnir í Palestínu í árásunum sem standa yfir þessa dagana - þar af 61 barn. Hvað þurfa mörg börn að deyja í viðbót áður en íslensk stjórnvöld bregðast við árásum Ísraela?

Stöðvum blóðbaðið - tafarlaust.

The Decision Makers

Íslensk stjórnvöld
Guðlaugur Þór Þórðarson

Petition Updates