Ísland: Stöðvið blóðtöku fylfullra hryssa í iðnaðarskyni

The Issue
IS / EN / DE / IT / FR / PL / ES
Stöðvum “pyntingarhormónið” PMSG
Heimildarmyndin “Iceland – Land of the 5,000 Blood Mares” sem gefin var út árið 2021 af Animal Welfare Foundation (AWF) og Tierschutzbund Zürich (TSB) afhjúpaði hryllinginn sem á sér stað í blóðtökuiðnaði: 119 blóðmerabú, rúmlega 5.300 hryssur, rúmlega 5.000 folöld sem enda í sláturhúsi sem aukaafurð. Eini tilgangur iðnaðarins er framleiðsla PMSG (ecg), hormón sem unnið er úr blóði fylfullra hryssa. Og hvers vegna? Hormónið er notað til að auka frjósemi annarra húsdýra. Hormónið er sérstaklega vinsælt í þauleldi svína. Með notkun þess festa gylturnar fang hraðar og hægt er að samstilla gangmál gylta. Með þessu móti er hægt að stýra því hvenær grísir fæðast. Það er hægstæðast fyrir svínaframleiðendur að gyltur gjóti á sama tíma. Allt er þetta í þágu kjötframleiðslunnar, sæðing, fæðing, eldi og að lokum slátrun.
Blóðtökuiðnaðurinn á Íslandi gæti stækkað á næstu árum. Fjöldi blóðmera gæti aukist í 20.000. Þetta þýðir að 20.000 þúsund folöldum yrði slátrað árlega sem aukaafurð. Allt að 30% hrossa á Íslandi væru þá blóðmerar. Við köllum eftir því að framleiðsla og notkun pyntingarhórmónsins PMSG verði með öllu stöðvuð. Íslenskum hryssum á ekki að blæða fyrir ódýrt svínakjöt. Fyrsta skref: auka vitund almennings og þrýsta á íslensk stjórnvöld. Hjálpið okkur með því að skrifa undir.
Staðan í mars 2023: Þrátt fyrir mikla umræðu og reiði almennings þá hefur
matvælaráðherra lögfest starfsemina í óbreyttri mynd til ársins 2025 með nýrri reglugerð sem tók gildi í ágúst 2022. Áfram er níðst á fylfullum hryssum. Eina breytingin sem átti sér stað síðan reglugerðin tók gildi er sú að nú er löglegt að taka blóð úr fylfullum hryssum í iðnaðarskyni. Fyrir hryssurnar hefur ekkert breyst, áfram eru teknir 5 lítrar af blóði vikulega, samtals 40 lítrar yfir blóðtökutímabil. Árið 2025 mun matvælaráðherra taka endanlega ákvörðun um framtíð PMSG framleiðslu. Þangað til munum við þrýsta á stjórnvöld og hagsmunaaðila.
Ný mynd eftir Animal Welfare Foundation og Tierschutzbund Zürich (mars 2023) sýnir nýjustu rannsóknarvinnu og viðtöl við fjölda sérfræðinga: “Iceland: The hidden blood business”.
Hjálpið okkur að enda framleiðslu PMSG á Íslandi. Sýnum íslenskum stjórnvöldum að velferð dýra er mikilvægari en fjárhagslegur gróði eins fyrirtækis. Saman getum við stöðvað framleiðslu PMSG.
Heimildarmyndir:
2021: Iceland – Land of the 5,000 Blood Mares
2023: Iceland: The hidden blood business
Samtök sem styðja bann við blóðtöku fylfullra hryssa og framleiðslu PMSG:
Anima, Denmark
Animal Justice, Canada
Animal Welfare Foundation (AWF), Germany
Animals’ Angels Inc., USA
Ärzte gegen Tierversuche, Germany
Canadian Horse Defence Coalition, Canada
Compassion in World Farming, United Kingdom
Dier&Recht, Netherlands
Dublin SPCA, Ireland
Dýraverndarsamband Íslands (DÍS), Iceland
Dyrenes Beskyttelse/Animal Protection Denmark
Eurogroup for Animals, Brussels
Fundación Franz Weber, Spain/Argentina
Green REV Institute, Poland
IHP Italian Horse Protection Onlus, Italy
Samtök um dýravelferð á Íslandi (SDÍ)/Animal Welfare Iceland
Tierschutzbund Zürich (TSB), Switzerland
WELFARM – Protection mondiale des animaux de ferme, France
Learn more:
www.animal-welfare-foundation.org/en/projekte/blood-farms/iceland
www.animal-welfare-foundation.org/en/service/dossiers/production-of-pmsg-in-iceland

Petition Closed
Share this petition
The Decision Makers
Petition Updates
Share this petition
Petition created on May 19, 2023