Áskorun um að sýna fræðsluþættina Free to Choose

The Issue

Við undirrituð skorum á RÚV, Ríkisútvarpið, að taka til sýninga fræðsluþættina Free to Choose eftir Nóbelsverðlaunahafann Milton Friedman.

Bjóðumst við um leið til að standa straum af kostnaði við kaup á sýningarrétti þáttaraðarinnar frá Free to Choose Foundation, hvort heldur RÚV kýs að sýna upprunalegu þættina frá 1980 eða uppfærðu þáttaröðina frá 1990.

Free to Choose er að margra mati eitt besta fræðsluefni sem völ er á um hagfræði og samfélagskenningar frjálshyggjunnar. Eru þessir vinsælu og sígildu þættir nauðsynleg undirstaða fyrir eðlilegan skilning og heilbrigða umræðu samfélagsins um stefnur og strauma í stjórnmálum.

Lengi hefur verið deilt um efnisval RÚV og fjölmiðillinn m.a. ítrekað verið sakaður um að hampa skoðunum vinstrikima stjórnmálanna en veitast að hugmyndum frjálshyggjumanna. Sýning Free to Choose-þáttanna myndi verða mikilvægt skref til að jafna áherslur stöðvarinnar og uppfylla þau skilyrði um óhlutdrægni sem RÚV hafa verið sett með lögum.

(Með undirskrift við þessa áskorun samþykkir þátttakandi að greiða a.m.k. jafnan hlut af samtals $US 500 sem er það verð sem Free to Choose Foundation hefur falist á að bjóða sýningarréttinn á. Þessi skuldbinding er ekki bindandi nema fjöldi undirskrifta fari yfir 20 og er því hámarkskostnaður á hvern þátttakanda $US 25, en lækkar eftir því sem undirskriftum fjölgar.)

Viðbót 15-05-2013: Undirskriftir eru löngu orðnar nógu margar til að tryggt sé að hægt verði að deila kostnaðinum mjög þægilega á marga greiðendur. Þeir sem skrifa undir þessa áskorun þurfa því ekki að hafa áhyggjur af að gengið verði mjög hart að þeim að greiða. Ef RÚV samþykkir að sýna þættina verður tölvupóstur sendur út í gegnum þennan undirskriftarlista til að safna framlögum.

This petition had 176 supporters

The Decision Makers

RÚV
RÚV

Petition Updates

Share this petition

Petition created on May 14, 2013