Hættum við brottvísun á Hanif og Jónínu ásamt foreldrum þeirra frá Íslandi

The Issue
Elsku vinir!
Við verðum að standa saman og krefjast þess að Saad, Fadilu, Hanif og Jónínu verði ekki vísað frá Íslandi. Hanif og Jónína eru fædd á Íslandi og njóta þar af leiðandi tiltekinna réttinda. Þar á meðal verndar samkvæmt 1. mgr. 21. gr. laga um útlendinga þar sem segir að óheimilt sé að vísa útlendingi úr land sé hann fæddur hérlendis og hafi frá fæðingu átt hér óslitna fasta búsetu. Að auki njóta þau þeirra réttinda sem felast í lögfestum barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna; að börn verði ekki send í óvissu og óöryggi og að ákvarðanir séu teknar með hagsmuni öryggi barnanna að leiðarljósi.
Það tókst ekki að flytja fjölskylduna úr landi núna 16. nóvember en það stendur enn til að senda hana til Ítalíu. Enginn veit hvað tekur við þeim þar, hvaða réttinda þau munu njóta, hvort þau hafi þak yfir höfuðið eða hvort ítölsk stjórnvöld taki yfirhöfuð við fjölskyldunni.
Við skorum á æðstu yfirmenn í útlendingamálum að breyta ákvörðun sinni og taka nýja ákvörðun sem heimilar fjölskyldunni að dvelja hérlendis; þó það væri ekki nema þangað til og til þess að fá endanlega úr því skorið hvort börn hælisleitenda, fædd hérlendis, njóti réttar samkvæmt gildandi lögum.
Kærar þakkir!

Petition Closed
Share this petition
The Decision Makers
Share this petition
Petition created on November 16, 2016