Leyfum Marcell í Sauna Zen að halda áfram með saunaþjónustu í Suðurbæjarlaug í Hafnarfirði

Recent signers:
Arnar Fridbjarnar and 19 others have signed recently.

The Issue

Til bæjaryfirvalda Hafnarfjarðar og forsvarsmanna Sundlaugar Hafnarfjarðar

Við, undirrituð, mótmælum eindregið þeirri ákvörðun að banna Marcell Hevesi að halda úti saunaþjónustu í Suðurbæjarlaug.

Um hvað er að ræða?

Í tæp tvö ár hefur Marcell boðið upp á faglega saunaþjónustu alla miðvikudaga kl 18:30 og 19:45. Þessi þjónusta hefur notið mikilla vinsælda og skapað samfélag fólks karla og kvenna sem nýtir sér heilsubætandi áhrif sauna meðferðar. Saunan er opin öllum með því skilyrði að þátttakendur skrái sig fyrir fram enda er fjöldi sæta takmarkaður. Þá er hún auglýst fyrirfram auk þess sem finna má skýrar merkingar í Suðurbæjarlaug um að saunan sé lokuð öðrum í þennan stutta tíma á meðan þjónustunni stendur. Um þetta hefur verið sátt meðal sundlaugargesta.

Í raun má líkja þessu við ungbarnasund, eða aðra þjónustu sem fram fer í sundlauginni og notendur skrá sig og greiða fyrir, að því leyti að á meðan tíminn stendur yfir nota ekki aðrir innilaugina á meðan. 

Í janúar 2026 kom óvænt atvik upp þegar einstaklingur neitaði að yfirgefa saununa þegar reglulegur tími á vegum Marcell sauna var að hefjast. Viðkomandi hélt því fram að hann væri í fullum rétti að vera í sauninni þar sem hún væri „almenningssauna", þrátt fyrir að tíminn væri lokaður öðrum en þeim sem þegar höfðu skráð sig.  Hann yfirgaf saunu klefann eftir orðaskak og sýndi viðskiptavinum Marcell mikinn hroka og dónaskap. Síðar kom í ljós að þessi einstaklingur er bæjarlögmaður Hafnarfjarðar. 

Stuttu síðar var Marcell tilkynnt sú einhliða ákvörðun  að hann megi ekki lengur bjóða upp á þjónustu sína eftir febrúar 2026. Ástæðan var rakin til brota á samkeppnislögum án þess að það hafi verið rökstutt með haldbærum hætti eða þar til bærir aðilar hafi tekið slíkt mál til meðferðar.

Þrátt fyrir að Samkeppniseftirlitið hafi tekið ákvarðanir í málum er varða líkamsræktarstöðvar sem reknar eru í sundlaugum á vegum sveitarfélaga liggur fyrir að slík sjónarmið eiga ekki við í því tilviki sem hér ræðir. 

Þá liggur einnig fyrir að sundlaugin lánar reglulega út aðstöðu til annarra þjónustuaðila sem bjóða uppá hina ýmsu þjónustu til íbúa bæjarfélagsins, s.s nuddara, ungbarnasundskennara og aðila sem bjóða uppá flot svo eitthvað sé nefnt. Ekkert af þessu virðist heyra undir samkeppnislög með sama hætti og þjónusta Marcel að mati bæjarlögmannsins.

Ákvörðunin er valdníðsla af verstu sort og henni er hér með mótmælt.

Hvers vegna skiptir þetta máli?

Tvöfaldur staðall: Hafnarfjarðarbær leyfir fjölmörgum öðrum aðilum að bjóða upp á þjónustu í sundlauginni gegn greiðslu, en bannar Marcell að halda áfram. 

Heilsubær – í orði en ekki á borði:Hafnarfjarðarbær gefur sig út fyrir að vera heilsubær, en bannar íbúum að njóta viðurkenndrar heilsubætandi þjónustu sem saunaathöfnin veitir.

Misbrestur á málsmeðferð: Þegar starfsmaður bæjarins beitir áhrifum sínum til að banna þjónustu eftir persónulegt ágreiningsmál, þá er það alvarlegt álitamál fyrir bæjarfélagið.

Missir samfélagsins: Fastagestir Marcell hafa byggt upp samfélag og venjur í kringum þessa þjónustu. Þeir missa verðmætt tækifæri til heilsubótar og félagslegra samskipta í bæjarfélaginu. 

Um saunaþjónustuna og heilsufarslegan ávinning

Marcel rekur Sauna Zen Iceland og hefur sérhæft sig í hefðbundinni saunagusum eða saunaseremóníu – aldagamalli þjóðvenju sem á rætur sínar að rekja til Mið-Evrópu. Þessi aðferð felur í sér sérstaka blöndu af hita, gufu, ilmefnum og öndunartækni sem stuðlar að djúpri slökun og heilsubót. Marcel er einstaklega metnaðarfullur og leggur sig allan fram við að skapa einstaka upplifun viðskiptavina sinna sem koma aftur og aftur.

Frekari upplýsingar um þjónustuna: Sauna Zen Iceland á Facebook

Vísindaleg gögn um áhrif saunakúra:

Rannsóknir sýna að reglulegar sauna athafna hafa margvísleg jákvæð áhrif á heilsu:

Bætt hjarta- og æðakerfi
Minna álag og kvíði
Betri svefn
Styrkir ónæmiskerfið
Bættur blóðþrýstingur
Minnkar álag á liði og vöðva

Nánari upplýsingar má finna í þessari yfirlitsgrein í Harvard Health Publishing: Sauna Health Benefits: Are saunas healthy or harmful?

Kröfur okkar:

Að Marcel fái að halda áfram sauna þjónustu sinni á sömu forsendum og aðrir þjónustuaðilar í sundlauginni

Skýr og gagnsæ útskýring á því hvers vegna saunaþjónustan er bönnuð á meðan önnur þjónusta er leyfð

Endurskoðun á málsmeðferð starfsmaður bæjarins notar sín áhrif sem hefur þau áhrif að fjölmargir íbúar hafnarfjarðabæjar sjá ekki fram á að geta sótt þjónustu sem þeim finnst mjög eftirsóknarverð.

Samræmi í stefnu bæjarins varðandi útleigu á aðstöðu sundlaugarinnar
 
Heilsubær á að stuðla að heilsu íbúa sinna – ekki takmarka aðgengi þeirra að heilsubætandi þjónustu vegna óskýrra og misvísandi reglna.

Undirrituð krefjast þess að bæjaryfirvöld og forsvarsmenn Sundlaugar Hafnarfjarðar endurskoði þessa ákvörðun tafarlaust.

Deildu þessum undirskriftalista og hjálpaðu okkur að bjarga þessari mikilvægu þjónustu fyrir Hafnfirðinga.

439

Petition Updates

Share this petition

Petition created on February 6, 2026