Petition updateLeyfa hljóðdempara á riffla á Íslandi.

Enn bætist við

Gudfinnur KristjanssonBudaors, Hungary
Mar 16, 2016
Núna þegar rúmar 5 vikur eru liðnar síðan að undirskriftarsöfnunin hófst eru komnar 1.396 undirskriftir. Ég var að koma úr veiðum í Englandi þar sem við vorum 7 veiðimenn þegar mest var. Að sjálfsögðu voru allir með hljóðdempara, nema ég. Sem betur fer þá var þetta í góðra vina hóp þannig að menn héldu sig við að spyrja mig hverskonar rugl þetta væri nú að leyfa hljóðdempara ekki á Íslandi. Ef þetta hefðu ekki verið góðir vinir mínir þá er alls óvíst að ég hefði fengið að taka þátt án dempara á rifflinum. Við þurfum að halda áfram að berjast fyrir því að þetta mikla hagsmunamál okkar skotfólks nái fram að ganga og að hljóðdemparar verði leyfðir á miðkveikta riffla á Íslandi, endilega haldið áfram að hvetja vini og vandamenn til að skrifa undir.
Copy link
WhatsApp
Facebook
Nextdoor
Email
X