Lengjum fæðingarorlof í 18 mánuði

Lengjum fæðingarorlof í 18 mánuði
The Issue
Lenging fæðingarorlofs í 18 mánuði er liður að fjölskylduvænna samfélagi
FYRSTU FIMM vinna náið með leikskólasamfélaginu og leggja áherslu á samtal og samvinnu foreldra og leikskólastarfsfólks/stjórnenda. Við tökum undir með faglegum stjórnendum sem segja stöðuna nú þegar óásættanlega þar sem sífellt er þrengt meira að börnum og starfsfólki. Staðan er slæm þrátt fyrir að börn séu ekki að komast inn fyrr en við 18 til 20 mánaða aldur. Ástandið verður mun verra ef krafa er gerð um að taka á móti öllum 12 mánaða börnum. Fagfólk leikskólanna kallar því eftir því að fæðingarorlof verði lengt í 18 mánuði.
FYRSTU FIMM kalla jafnframt eftir aukinni virðingu fyrir starfi leikskóla og krefjast fullnægjandi skilyrða þar fyrir börn og starfsfólk. Samkvæmt nýjustu upplýsingum frá stjórn félags leikskólastjórnenda er það verulegt áhyggjuefni að nú þegar vantar um 1500 leikskólakennara á landsvísu auk þess sem fyrir séð er að stórir hópar starfandi leikskólastarfsfólks er að fara á eftirlaun. Þetta eykur enn frekar á álagið inni í leikskólum.
FYRSTU FIMM krefjast frekari aðkomu stjórnvalda til að styðja barnafjölskyldur í umönnunarbilinu þar sem borg- og sveitafélög hafa takmarkaða burði til að tryggja fullnægjandi aðstæður fyrir börn.
FYRSTU FIMM krefjast þess að fundnar verða lausnir til að bæta lífsgæði barna og foreldra þeirra á fyrstu æviárunum.

2,917

Share this petition
Petition created on September 30, 2022