Petition updateBönnum loðdýraeldi á Íslandi/ Ban fur farming in Iceland

Nú er tækifærið til að kalla eftir banni við loðdýrarækt

Rósa DarradóttirReykjavík, Islande
26 nov. 2026

Kæru stuðningsmenn,

Nú stendur yfir heildarendurskoðun laga um velferð dýra á Íslandi. Drög að nýjum lögum hafa verið birt í Samráðsgátt stjórnvalda en þar er ekkert ákvæði um bann við loðdýrarækt.

Þetta er mikilvægt tækifæri til að láta rödd okkar heyrast.

Rökin fyrir því að binda endi á loðdýrarækt á Íslandi hafa sjaldan verið sterkari:

  • Aðeins eitt minkabú er enn starfandi á Íslandi.
  • Dýralæknafélag Íslands hefur kallað eftir því að loðdýrarækt verði bönnuð.
  • Vísindalegt mat sýnir að núverandi búrahald takmarkar verulega möguleika minka til hreyfingar og náttúrulegrar hegðunar.
  • Minkur er ágeng framandi tegund á Íslandi og villti stofninn á uppruna sinn að rekja til dýra sem sluppu úr loðdýraeldi.
  •  Fleiri og fleiri Evrópuríki hafa ákveðið að leggja loðdýrarækt af. Nú síðast Danmörk, land sem um áratugaskeið var meðal stærstu framleiðenda minkaskinna í heiminum.
  • Atvinnuvegaráðherra Hanna Katrín Friðriksson sagði sjálf fyrr á þessu ári: „Við þurfum einfaldlega að svara kalli tímans þegar kemur að því hvernig við umgöngumst dýr.“

    Við erum sammála. Nú er tækifærið til að láta það endurspeglast í lögunum.

Hvað getur þú gert?

1. Sendu umsögn í Samráðsgátt fyrir 4. desember.
Hvettu stjórnvöld um að nýta heildarendurskoðun laganna til að lögfesta bann við loðdýrarækt. 

Umsögn má senda hér:
https://island.is/samradsgatt/mal/4387

Hún þarf ekki að vera löng. Nokkrar setningar um að þú viljir að loðdýrarækt verði bönnuð geta skipt máli.

2. Deildu undirskriftasöfnuninni.
Því fleiri sem standa að baki kröfunni, því sterkari verða skilaboðin til stjórnvalda.

3. Kynntu þér gögnin.
Við höfum tekið saman helstu vísindalegu, lagalegu, efnahagslegu rökin fyrir banni í nýju stefnuskjali okkar:

https://www.dyravelferd.is/news/loddyraraekt-a-islandi-rokin-fyrir-banni

Nú er komið að Íslandi. Hjálpaðu okkur að setja punktinn við loðdýrarækt.

Takk kærlega fyrir stuðninginn,
Samtök um dýravelferð á Íslandi

*ENGLISH*  

Dear supporters,

Iceland is currently carrying out a comprehensive review of its Animal Welfare Act. A draft of the new legislation has now been published for public consultation, but it contains no provision to ban fur farming.

This is an important opportunity to make our voices heard.

The case for ending fur farming in Iceland has rarely been stronger:

  • Only one mink farm remains in operation in Iceland.
  • The Icelandic Veterinary Association has called for fur farming to be banned.
  • Scientific assessments show that current cage systems severely restrict minks’ ability to move and express natural behaviours.
  • American mink is an invasive alien species in Iceland, and the wild population originates from animals that escaped from fur farms.
  • More and more European countries have decided to phase out fur farming. Most recently, Denmark, a country that for decades was among the world’s largest producers of mink fur.
  • Earlier this year, Iceland’s Minister of Industries, Hanna Katrín Friðriksson, said: “We simply need to respond to the call of our time when it comes to how we treat animals.”

    We agree. Now is the opportunity to ensure that this is reflected in Icelandic law.

What can you do?

1.Submit a consultation response before 4 December.
Urge the Icelandic Government to use this comprehensive review of the Animal Welfare Act to introduce a legal ban on fur farming.

You can submit a response here:
https://island.is/samradsgatt/mal/4387

Your response does not need to be long. Even a few sentences stating that you support a ban on fur farming can make a difference.

2.Share our petition.
The more people who stand behind this call, the stronger the message to the Icelandic Government.

3.Read the evidence.
We have brought together the key scientific, legal, economic and animal-welfare arguments for a ban in our policy paper:

https://www.dyravelferd.is/news/loddyraraekt-a-islandi-rokin-fyrir-banni

Now it is Iceland’s turn. Help us put an end to fur farming in Iceland.

Thank you for your support,

Animal Welfare Iceland

104 people signed this week
Sign this petition