Björgum Siglunesi: einstöku æskulýðsstarfi á sjó

The Issue
Tekin hefur verið ákvörðun um að loka Siglunesi með einu pennastriki. Borgarráð samþykkti það á miðvikudaginn síðastliðinn í hagræðingarskyni. Á hverju sumri mæta hátt í þúsund börn í Siglunes og upplifa ævintýri sem þau geta hvergi annarsstaðar upplifað. Börn kynnast sjónum, veðrinu og læra undirstöðuatriði í siglingum seglbáta og róðri á hinum ýmsu bátum.
Það sem er einstakt við Siglunes eru aðstæðurnar fyrir börn sem hafa misjafnan bakgrunn og reynslu til að styrkjast sem einstaklingar og stækka þægindarammann, börn sem hafa jafnvel ekki upplifað þessa sigurtilfinningu í öðru íþrótta- og æskulýðsstarfi.
Það væru dýrkeypt mistök að loka Siglunesi og með því væri tekið heljarstökk aftur á bak. Þar að auki er undirbúningur ákvörðunarinnar enginn en mat á áhrifum lokunarinnar á frístunda- og tómstundastarf barna liggur meðal annars ekki fyrir. Við mótmælum þessari gríðarlegu þjónustuskerðingu við börn í borginni – við mótmælum lokun Sigluness!
4,456

Petition created on December 2, 2022