Þrýstum á ríkisstjórnina að kaupa nýju krabbameinslyfin!

The Issue
Við undirrituð skorum hér með á stjórnvöld og háttvirt Alþingi að kaupa ný og betri krabbameinslyf fyrir krabbameinssjúklinga.
Í aðdraganda síðustu Alþingiskosninga lét háttvirtur heilbrigðisráðherra Óttarr Proppé þau ummæli falla að ekki myndi það gerast á vakt Bjartrar framtíðar að „krabbameinssjúkt fólk fengi ekki bestu lyf sem völ væru á.“
Þetta eru stór orð sem ekki voru sett fram með neinum skilyrðum eða neðanmálsgreinum.
Skorum við því á háttvirtan heilbrigðisráðherra Óttarr Proppé (líkt og að Svandís Svavarsdóttir gerði í Alþingi í lok febrúar) að standa við stóru orðin: að leggja til við frumvarp til fjáraukalaga á yfirstandandi ári viðhlítandi fjármagn – í þennan tiltekna lið málaflokks sem undir hann heyrir – til að tryggja það að krabbameinssjúkt fólk njóti bestu lyfja sem völ eru á í heiminum, eins fljótt og auðið er.
http://www.althingi.is/altext/upptokur/lidur/?lidur=lid20170223T105850
Í 70 ár höfum við búið við þá skelfilegu aðstöðu að vera með eitruð krabbameinslyf sem hafa drepið fleiri en læknað (sjálfur greindist forsvarsmaður þessa lista með krabbamein fyrir rúmum fimmtán árum síðan og hefur glímt við eftirköst þessara eitraðra lyfja – t.d. veikt ónæmiskerfi, lítið þrek, sjónmissir o.s.frv. – frá því að hann náði bata fyrir eigin tilstilli með notkun krydda.)
En nú er öldin önnur; búið er að þróa ný krabbameinslyf sem eru fljótvirk og skemma ekki líkamann sem eftir er, ef maðurinn nær heilsu – sbr. t.d. eftirfarandi grein frá því júlí í fyrra, þar sem vísað er í yfirlæknir lyflækninga krabbameina á Landspítalanum, sem er „fullviss um að þessi flokkur af lyfjum muni breyta ásýnd krabbameina.“:
„ ... þau lyf sem ekki (komast) til skila eru ný tegund af krabbameinslyfjum sem örva ónæmiskerfið til að ráðast gegn krabbameinum ... með þeim er hægt að virkja ónæmiskerfið til að halda krabbameinum niðri, jafnvel til langs tíma. Þá eru aukaverkanir af þessum nýju lyfjum yfirleitt minni en af hefðbundnum krabbameinslyfjum og býr fólk því við betri lífsgæði á lyfjunum.“
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2016/06/30/ny_lyf_breyta_asynd_krabbameina/
Það er ekkert leyndarmál að íslenskum yfirvöldum hefur gengið illa að innleiða ný lyf af sama krafti og nágrannaþjóðir okkar – og háttvirta Alþingi gleymir því kannski að einn af hverjum þremur Íslendingum deyr af völdum krabbameins.
Við getum ekki horft upp á þetta lengur og krefjumst úrbóta – og það strax.

10,212

Petition Updates
Share this petition
Petition created on April 9, 2017