Leggjum niður Kjararáð

The Issue

Gengdarlausar hækkanir kjararáðs á launum embættismanna og kjörinna fulltrúa eru löngu komnar út fyrir allt velsæmi og það er tími komin til að við segjum okkar skoðun á því svo mark sé á takandi.

Launahækkanir embættismanna og kjörinna fulltrúa eru algerlega úr takti við það samkomulag sem gert var við aðila vinnumarkaðsins um hóflegar launahækkanir.

Kjararáð hefur fyrir löngu sýnt og sannað að það slær ekki í takt við hinn almenna borgara og sólundar almanna fé í yfirgengilegar launahækkanir sem eru í engu samræmi við það sem almenningi er boðið í almennum kjarasamningum. Það er ólíðandi að hægt sé að hækka laun þeirra sem starfa fyrir almenning með þessum hætti án nokkurar aðkomu okkar sem greiðum þessi laun með okkar sköttum. Á sama tíma er svo kvartað yfir því að ekki séu til nægir peningar í ríkiskassanum til að viðhalda heilbrigðisþjónustu og menntakerfi með mannsæmandi hætti.

Það er því kominn tími til að skora á stjórnvöld að afnema kjararáð ekki seinna en strax og innleiða heilbrigðari og eðlilegri stefnu í ákvörðun launa embættismanna og þjóðkjörinna fulltrúa í samræmi við þá stefnu sem ríkisstjórnin hefur sjálf mótað fyrir almenning í landinu.

This petition had 5,259 supporters

Petition Closed

This petition had 5,259 supporters

Share this petition

The Decision Makers

Alþingi Íslendinga
Alþingi Íslendinga
Petition updates

Share this petition

Petition created on 31 October 2016