Tryggið að frumvarpið verði ekki að lögum í óbreyttri mynd

The Issue
VELBÚ, samtök um bætta velferð búdýra, fagnar því að frumvarp til laga um velferð dýra hefur nú verið lagt fyrir Alþingi Íslendinga. Það veldur okkur í samtökunum þó miklum vonbrigðum að sjá sumar þeirra breytinga sem gerðar hafa verið á tillögum þeirrar nefndar sem falið var að rita drög að frumvarpinu.
VELBÚ telur með öllu ótækt að gelding grísa yngri en viku gamalla verði leyfð án deyfingar og verkjastillandi meðhöndlunar. Ung dýr hafa ekki takmarkaðra sársaukaskyn en eldri dýr; rannsóknir hafa aldrei sýnt fram á það. Þessi breyting samræmist á engan hátt markmiðum laganna sem segja að dýr skuli vera laus við vanlíðan, hungur og þorsta, ótta og þjáningu, sársauka, meiðsli og sjúkdóma, í ljósi þess að dýr eru skyni gæddar verur.
Þá mótmælir VELBÚ harðlega niðurfellingu málsgreinar sem veitir Matvælastofnun heimild til þess að skerða eða fella niður ríkisstyrki til þeirra sem brjóta lög um velferð dýra. Þetta er nauðsynlegt þvingunarúrræði og óforsvaranlegt að veita skattfé í formi landbúnaðarstyrkja til aðila sem dæmdir eru fyrir slík brot. Þörfin er brýn því fjölmörg dæmi hafa sýnt að sektir bera ekki árangur sem skyldi.

Petition Closed
Share this petition
The Decision Makers
Share this petition
Petition created on June 13, 2012