FYRSTU FIMM: Ákall til borgarfulltrúa Reykjavíkur

FYRSTU FIMM: Ákall til borgarfulltrúa Reykjavíkur
Til borgarfulltrúa
Óskað er eftir undirskrift þinni ágæti borgarfulltrúi til samþykktar á tillögum FYRSTU FIMM.
Foreldrar eru mikilvægustu mótunaraðilar barna og því mikilvægt að þeir fái hvata og stuðning til að koma í meira mæli að umönnun barna sinna á tengslamyndunarskeiði þeirra. Aukið val felst í því að gefa foreldrum kost á að nýta fjármagn sem Reykjavíkurborg ver til niðurgreiðslu leikskóla. Val væri um að:
· 80% af þessu fjármagni færi til foreldra sem annast barn sitt sjálf
· 50% leikskólaþjónusta og 40% af fjármagni til foreldra
· Sex stunda frí leikskólaþjónusta á dag.
Þetta úrræði gæti dregið úr streitu og álagi á börn, foreldra og starfsfólk leikskóla og mögulega aukið gæði leikskólaþjónustunnar án kostnaðarauka.
Fyrirvari: Ákall til borgarfulltrúa Reykjavíkurborgar er aðeins byrjunin, í framhaldi verður ákallið sent á önnur sveitarfélög landsins og til þess þurfum við þinn stuðning.